Þann 1. september 2009 eru liðnir 18 mánuðir frá því að RARIK Orkuþróun ehf. eða RARIK Energy Development Ltd. (RED) tók til starfa en það er dótturfélag RARIK ohf. Á þeim tímamótum er nýjum vef fyrirtækisins hleypt af stokkunum undir vefslóðinni www.red.is.
Vefsíðan hefur verið í smíðum á undanförnum mánuðum og hafa komið að henni bæði starfsmenn innan RED og RARIK auk utanaðkomandi aðila. Er vonast til þess að vefurinn upplýsi hvert hlutverk fyrirtækisins er og hver helstu viðfangsefni þess eru á hverjum tíma. Eflaust á vefsíðan eftir að þróast á næstu misserum og taka breytingum eftir því sem fyrirtækinu vex fiskur um hrygg.