Þann 15 janúar 2010 féllst Orkustofnun á umsókn Sjávarorku ehf. um rannsóknarleyfi í Hvammsfirði á Breiðafirði vegna sjávarfallavirkjunar. Leyfið var hins vegar takmarkað að því leyti að ekki var veitt heimild til rannsókna utan netalaga og jafnframt var beiðni Sjávarorku um forgang að nýtingarleyfi hafnað.
Vegna þessa lagði Sjávarorka fram stjórnsýslukæru til Iðnaðarráðuneytis þann 23. febrúar 2010. Var þess krafist að gefið verði út rannsónarleyfi til handa Sjávarorku í samræmi við umsókn frá 10. september 2009.