Í árslok 2008 lagði RARIK ohf. aðild sína í undirbúningi að Hólmsárvirkjun inn í dótturfélag sitt RARIK Orkuþróun ehf. RARIK Orkuþróun ehf. (RED) hefur unnið að undirbúningi virkjunar Hólmsár í Skaftártungu í samvinnu við Landsvirkjun á undanförnum misserum.
Gerður var samningur um að Orkusalan ehf. yfirtæki verkefnið með tilheyrandi réttindum og skyldum. Aðildaskipti þessi tóku gildi frá 1. janúar 2011 og eru gerð með fullu samþykki Landsvirkjunar, Orkustofnunar og RARIK ohf. RED mun eftir sem áður leiða verkefnið á næstu árum a.m.k. á meðan unnið er að mati á umhverfisáhrifum sem og verkhönnun.