Landsvirkjun og RARIK sóttu sameiginlega um leyfi til rannsókna á vatnasviði Skaftár og Tungufljóts í nóvember 2008. Leyfið var ætlað til athugunar á hagkvæmni og nýtingu virkjunar í Skaftá.
Umsóknin var dregin til baka í janúar 2010 og gert samkomulag við Suðurorku um aðgang Suðurorku að rannsóknargögnum í eigu LV/RARIK vegna umsóknar Suðurorku um rannsóknarleyfi.