Fyrirtækið sinnir fjölda ólíkra verkefna á hverjum tíma, á Íslandi og í mörgum öðrum löndum. Það leggur ríka áherslu á nýsköpun og rannsóknir. Mannauðurinn er dýrmætasta auðlind fyrirtækisins.
EFLA starfar samkvæmt vottuðu gæðakerfi (ISO 9001:2000) og skv. vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi (ISO 14001:2004).
EFLU var formlega hleypt af stokkunum 10. október 2008 þegar sameiningarferli fjögurra verkfræði- og ráðgjafarstofa var lokið og nýtt fyrirtæki orðið til, en það er meðal stærstu ráðgjafarfyrirtækja landsins. Að EFLU stóðu: Verkfræðistofan Afl (stofnuð 1987), Verkfræðistofan Línuhönnun (stofnuð 1979), RTS - Verkfræðistofa (Raftæknistofan - stofnuð 1988) og Verkfræðistofa Suðurlands (stofnuð 1973).
Innan EFLU starfa 6 markaðssvið: Orka og veitur, Iðnaður, Samgöngur, Byggingar, Umhverfi og Verkefnastjórnun og 28 kjarnasvið sem tilheyra þeim. Þar að auki eru þar helstu almenn stoðsvið, til viðbótar við Viðskiptaþróunarsvið og Rannsókna- og nýsköpunarsvið.
EFLA á dóttur- og hlutdeildarfélög í Noregi, Rússlandi, Frakklandi, Póllandi, Slóveníu, Tyrklandi og Dubai sem sinna ráðgjafar- og þróunarverkefnum.
www.efla.is