Austari Jökulsá verður stífluð í Pollagili um 1,5 km ofan ármóta við Geldingsá. Þetta yrði stærsta stíflan og fjórða efnismesta stífla landsins. Undir stíflunni verður botnrás og inntakið í aðrennslisgöngin skammt frá. Lengri en lægri stífla ásamt steinsteyptu yfirfalli verður í lægð austan Jökulsár og yfir Geldingsá. Einnig þarf litla skurði til að veita Geldingsá inn í miðlunarlónið sem er nefnt Bugslón.
Yfirfallshæð miðlunar verður í 712 m y.s. Flatarmál vatnsflatar lónsins þegar það er í yfirfallshæð, 712 m y.s, er um 26,3 km2 en lónið er um 29,0 km2 þegar tillit hefur verið tekið til eyja sem myndast í lóninu. Miðað við að nýta lónrýmið niður í 672 m y.s. er nýtanlegt lónrými 360 Gl.
Gert er ráð fyrir að veita vatni frá Fossá og Hölkná á Nýjabæjarfjalli um jarðgöng í Bugslón. Árnar eru meðal stærstu lindáa á Íslandi sem koma upp utan hraunasvæða (Árni Hjartarson, 2009). Vatninu er veitt um u.þ.b. 10 km löng jarðgöng í farveg Geldingsár rétt ofan stíflunnar.
Frá Bugslóni verða samfelld aðrennslisgöng til norðvesturs út á fjallsbrún um 1,0 km sunnan hnjúksins Elliða. Heildarlengd þeirra er um 32,9 km. Lóðrétt stálfóðruð fallgöng eru fyrirhuguð að stöðvarhúsi neðanjarðar sem verður í um 100 m y.s. og loks frárennslisgöng áfram til norðvesturs undir Austari Jökulsá.
Frárennslisgöngin opnast út í farveg Héraðsvatna um 1,5 km neðan ármóta Austari og Vestari Jökulsár, á móts við bæinn Villinganes. Lengd frárennslisganga er um 12,4 km, og síðan er gert ráð fyrir um 500 m löngum skurði eftir farveginum til að nýta fallhæðina niður í um 100 m y.s.
Eins og hér kemur fram eru allir vatnsvegir neðanjarðar og helstu áhrif þeirra á umhverfið eru því aðkomugöng að vatnsvegunum. Að minnsta kosti verða fern aðkomugöng. Umhverfisáhrif virkjunarinnar verða óveruleg nema herst varðandi breytingu á rennsli. Dregur verulega úr rennsli Austari Jökulsár, Fossár og Hölknár af Nýjabæjarfjalli. Einnig mun draga lítillega úr rennsli Vestari Jökulsár þar sem jökulrennsli Fossár verður veitt í Bugslón.
Einkennisstærðir Skatastaðavirkjunar
| Einkennisstærðir |
Eining
|
Skata- staða- virkjun
|
| Meðalrennsli til virkjunar |
m3/sek |
27,2 |
Yfirfallshæð í virkjun
|
m.y.s. |
716 |
| Fallhæð |
m |
556 |
| Inntakslón |
Gl |
359 |
Uppsett afl
|
MW |
156 |
| Orkugeta |
GWh/ári |
1090 |