English
Á forsíðu RED (lógó)

Forsíða Um RARIK Orkuþróun Verkefni á íslandi Verkefni erlendis Samstarfsaðilar Fréttir

Villinganesvirkjun

Villinganesvirkjun hefur verið í undirbúningi á vegum Héraðsvatna ehf. Verkhönnun og umhverfismati við virkjunina var lokið á sínum tíma og einnig vinnu við deiliskipulag. Hún er áætluð 33 MW að stærð og orkugeta 190 GWh/ári án miðlunar en um 240 GWh/ári með miðlun.




Fyrirhugað er að stífla Héraðsvötnin milli bæjanna Villinganess og Tyrfingsstaða, þ.e. um 2 km neðan við ármót Eystri- og Vestari-Jökulsár. Virkjuð fallhæð, um 57 m, fæst með því að hækka vatnsborðið með stíflunni og grafa skurð eftir farveginum neðan hennar.


Uppsett afl virkjunar verður 33 MW en hún verður rekin sem rennslisvirkjun sem byggist á tiltölulega jöfnu rennsli í Jökulsánum á veturna. Stíflugerðin leiðir til hækkunar vatnsborðs í gljúfrunum og mun áhrifa vegna þessa gæta frá stíflustæðinu að fremri mörkum jarðanna Gilsbakka við Eystri-Jökulsá og Byrgisskarðs við Vestari-Jökulsá. Lónið sem myndast verður um 1,7 km2 að flatarmáli og mun rúma um 33,5 Gl miðað við vatnsborð í yfirfallshæð. Stærð lónsins leyfir eingöngu miðlun til jöfnunar á dægursveiflum rennslis og álags.

 

Mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar hefur verið samþykkt af skipulagsstofnun og umhverfisráðherra.


 Einkennisstærðir Villinganesvirkjunar

Einkennisstærðir Eining

Villinganesvirkjun

án miðlunar

Villinganesvirkjun

með miðlun við Austurbug

Fallhæð  m  57 57
Inntakslón  Gl  33,5 33,5
Uppsett afl
 MW  33 33
Orkugeta  GWh/ári  190 240



RED | RARIK Energy Development    |    Bíldshöfði 9, 110 Reykjavík    |    Sími: 528 9000    |    Fax: 528 9009    |    info@red.is